Kærar þakkir fyrir komuna á UNGA 2026.
UNGI hefur verið haldin frá árinu 2013 og var þetta 9. hátíðin nú í ár. Hátíðin stóð að þessu sinni í 4 daga, frá 23.–26. apríl 2026. Boðið var upp á níu leiksýningar, sex íslenskar og þrjár erlendar sýningar frá Litháen, Lúxemborg og Noregi. Yfir 2.000 gestir komu á sýningar og viðburði. Hátíðin var einkar fjölbreytt að þessu sinni með sirkussýningar, danssýningar, uppistand, brúðusýningar og sýningar fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 16 ára.
Sviðslistasýningar fyrir börn eru mikilvægur þáttur í menningaruppeldi okkar og flest okkar muna sína fyrstu leikhúsferð. Sviðslistirnar spyrja ekki um uppruna, tungumál eða bakgrunn barna. Þær einfaldlega veita barninu innsýn í töfraheim sem er fullur af ævintýrum, gleði og boðskap um betri heim.
Kæru börn — þakkir fyrir komuna á UNGA.
Lárus Vilhjálmsson, formaður ASSITEJ á Íslandi
Dagskrá
föstudagur, 24. apríl
10:00Töfraloftbelgurinn
Lokuð sýning- 10:30
Tribute to me
Lokuð sýning - 11:00
Blómin á þakinu
Lokuð sýning - 13:00
Mother of the sea 2026
Lokuð sýning - 13:00
Hreiðrið
Lokuð sýning - 14:00
World without eyes
Lokuð sýning - 15:00
Knuet (Hnútar)
Lokuð sýning

Ljósmynd: Laura Vanseviciene 
Ljósmynd: Antero Hein 










